hjalti, stopuli bloggarinn...

living is easy with eyes closed, but it makes reading slightly harder

miðvikudagur, nóvember 16, 2005

 

sleepy mo fo

var að enda við að hræra í eina grein á hina rómuðu sellu um það hvernig er að vera í háskóla sem er á kúpunni.
þetta er svo í óspurðum fréttum: skóli, vinna, hagsmunabrölt og bandý. sundurliðun fæst aðeins í samtölum við undirritaðan að svo stöddu.
Get eins og er varla beðið eftir að önninni ljúki, veit ekki afhverju. er lítið búinn að læra í haust, en er gjörsamlega óþreyjufullur. reikna hins vegar með að verða eitthvað fullur um helgina og svo eru white stripes á sunnudag úé...

góðar stundir

laugardagur, nóvember 05, 2005

 

what's the difference between...

an international entourage of intellectual midgets and a girls' track team?
one’s a bunch of cunning runts, and the other's are a bunch of running cunts...

fimmtudagur, nóvember 03, 2005

 

furðufrétt part 1.1

bannar innflutning villtra fugla
ok hvernig verður það gert, verða allir farfuglar skotnir við komuna til landsins?
bara spyr

miðvikudagur, nóvember 02, 2005

 

furðufrétt

ofmikil snjókoma hindrar snjóframleiðslu???

þriðjudagur, október 25, 2005

 

framapotarinn

sælt sé fólkið,
undirritaður hefur komið sér í annað embætti í skólanum. í kvöld var endurstofnað félag sem ætlað er að standa vörð um hagsmuni nemenda í hugvísindadeild h.í. og jors trúlí bauð sig fram sem meðstjórnandi. þetta fer í safnið ásamt skorarfulltrúaferlinum.
er á uppleið í lífinu :)

framundan er lestur í skýrslu hugvísindadeildar um sig sjálfa til að undirbúa mig undir fund með fulltrúum menntamálaráðuneytis um deildina.
white stripes mallar af harða diskinum, cure og depeche mode fá að rúlla á eftir, þetta er ákaflega þægilegt.

góðar stundir

 

ritstífla

er að verða smá snar...
ætla mér að skila af mér verkefni á morgun en er algjörlega tómur þegar kemur að því að pikka inn texta eftir þeim upplýsingum sem ég hef viðað að mér.
sit þess vegna hér við tölvuna og geri allt annað en að læra.
marley á spilaranum, no woman, no cry er líklegast með bestu lögum áttunda áratugarins og one love/people get ready er ekki síðra.

ljúfir bassahljómar reggísins fylla íbúðina, best að gera aðra atrennu að verkefninu...

ljúfar stundir

fimmtudagur, október 20, 2005

 
nördinn í mér tók kipp í gær þegar ég sá heimildarmynd um trekkara. það má segja að það hafi farið sæluhrollur um mig við tilhugsunina um að vera bara eðlilegur og hafa bara gaman að star trek. en við að horfa á þáttinn þá fór ég að experimenta með svolítið sem ég hef aldrei getað og hér má sjá árangurinn, en hvort hann sé merkilegur er umdeilanlegt.

annars er af bandýmálum það að frétta að ég var aftur skotinn í höfuðið á æfingu. núna í mitt ennið :) sökin var mín í þetta skiptið því ég begði mig niður á móti skotinu til að loka markinu. árangurinn var ágætis skráma og dálaglegur hausverkur.

er að skrifa námskeiðsritgerð um coca-cola þessa dagana og í einni af þeim bókum sem ég hef verið að skoða þá er hvorki meira né minna en sjálf leyniformúlan að velgengninni, uppskriftin að sjálfu undraefninu 7x. það er víst að mati cc company svo mikilvægt að halda uppskriftinni leyndri að þeir hafa ætlað að draga sig út af mörkuðum erlendis frekar en að gefa upp innihaldið til innflutningsyfirvalda í viðkomandi landi. böeníhá þá er víst formúlan gefin upp í þessari bók hér.

góðar stundir

föstudagur, október 14, 2005

 
hárin gráu verða fleiri og fleiri með tímanum. það er víst allt í lagi og ekki miklar áhyggjur því samfara. það er hins vegar vandræðalegt að þau gráu eru svo gróf að það jaðrar við að þau séu dónaleg... blaa

fimmtudagur, október 13, 2005

 
titill síðunnar segir allt sem segja þarf. ég er ekki duglegur bloggari. hvað um það er með flensuskít þessa dagana en það hefur ekki raskað mínum venjum og háttum sem hafa nú upp á síðkastið snúist um að gera sem minnst. er þó komin af stað með að marka mér viðfangsefni í b.a. verkefninu og hef meira að segja talað við prófessor sem er til í að vera umsjónarmaður minn. þetta er víst allt að koma.

annars komst ég að því um daginn gagnstætt því sem ég hef hingað til haldið þá sökka ég bigtime í keilu en það var svo sem vitneskja sem hefur ekki mikil áhrif á sjálfið.

var í tíma áðan og fer á eftir í vinnuna en í millitíðinni ætla ég að fara í að kanna hvað hefur verið skrifað um viðfangsefnið sem ég er að velta fyrir mér að tækla.

góðar stundir

miðvikudagur, október 05, 2005

 
var að horfa á hotel rwanda áðan það er ekki laust við að maður sé hálf máttlaus á eftir. reyndar er fátt í myndinni sem kom mér á óvart vegna þess að þjóðarmorðið í rúanda 1994 var eitt að viðfangsefnum mínum í námskeiði í háskólanum síðasta vetur. þá gerði ég þessa grein um atburðina.

hef pent glóðarauga þessa dagana þar sem ég fékk bandýkúlu í augað af 2 metra færi á mánudag, slapp við allan augnskaða en í staðin hef ég skemmtilegt svona "show and tell" ;)

októberfestið byrjar á morgun og er nú í tvo daga en ég missi af fyrri helmingi látanna á föstudag þar sem deildardagur hugvísindadeildar verður á föstudag, fékk ekki að vita það fyrr en í dag þar sem deildinni hafði ljáðst að láta nemandafulltrúana vita fyrr en í dag. góður stæll þar.

góðar stundir

sunnudagur, september 25, 2005

 
afrek hvorki meira né minna...
var að taka þátt í íslandsmótinu í bandý í dag með liði uía, árangur var ágætur lenti í fjórða sæti, voru víst yfirspilaðir í undanúrslitunum og bronzleiknum. eina sem ég fékk út úr þessu er bólgin ökkli, hné og mjöðm og ein brottvísun. nokkuð fjölbreyttur árangur á eftirmiðdegi...
þannig að nú er víst að ná bólgunum niður áður en spriklið byrjar aftur.

bæklaðar stundir...

föstudagur, september 23, 2005

 
vísindaferð á eftir, fróði er á leið í landsvirkjun að sníkja öl fyrir að sitja undir áróðri. ég ætla að mæta og drekka á kostnað þessa fyrirtækis sem á vissan hátt er barn síns tíma.
ég tel að þörf fyrir ríkisrekið virkjanafyrirtæki sé löngu liðin. ríkið ætti frekar að vera útgefandi virkjanaleyfa en ætti, efi væri í forsendum framkvæmda að láta náttúruna njóta vafans. ef einkaaðilar sjái sér hag í því að ráðast í megavirkjanir til framleiðslu fyrir stóriðju og séu sáttir við áhættuþættina í framkvæmdunum og rekstrinum þá eiga þeir að gera svona hluti sjálfir en ekki ríkið.
bara hita upp fyrir kvöldið hehehe...
annars þá er vinna hjá mér á morgun og keppni á sunnudag í bandý, frekar súr hugmynd að hugsa um mig hlaupandi, ég hleyp nefnilega bara í spik :)

góðar stundir

þriðjudagur, september 20, 2005

 
ég kúgast ekki oft, það gerist stundum við tannburstun og þegar ég kemst í þá pínlegu stöðu að þurfa eta lifur eða hjörtu. annars þá legg ég það ekki í vana minn að kúgast. ég varð hinsvegar hálf grænn við að lesa þessa frétt á mbl, ógleðin kítlaði dulítið en hvarf svo fljótlega. síðan fór ég að pæla hver gæti verið þessi sjúklingur sem fer undir hnífinn til að fá nýtt andlit. og hver var niður staðan? nú náttúrulega michael jackson hann er jú sagður vilja auka karlmennskuímynd sína og þá fékk ég aftur klígju.

annars þá á ég grein á hinni hálf dauðu sellu í dag, engin ógleði þar.

góðar stundir

föstudagur, september 16, 2005

 
Journalist: M. Ben M'Hidi, don't you think it's a bit cowardly to use women's baskets and handbags to carry explosive devices that kill so many innocent people?

Ben M'Hidi: And doesn't it seem to you even more cowardly to drop napalm bombs on defenseless villages, so that there are a thousand times more innocent victims? Of course, if we had your airplanes it would be a lot easier for us. Give us your bombers, and you can have our baskets.

 
hæ heimur, ég sit hérna inni í tölvustofu í árnagarði og er að slæpast. var áðan í tíma um sögu norður-afríku á 20. öld þar sem ég horði á á hina nafntoguðu mynd la battaglia di algeri eftir gillo pontecorvo, ítalskan snilling.
myndin er frá 1965 en hefur engan vegin glatað gildi sínu. þó svo að hún sé gerð í nýfrjálsri alsírborg (3 árum eftir sjálfstæði) þá er hún ekki yfirgnæfandi hlutdræg. vissulega þá dregur hún taum þjóðfrelsishreyfingarinnar og sýnir m.a. hluta af þeim pyntingum sem franskir sérsveitarmenn viðhöfðu á andspyrnumönnunum en samt þá er ekki dregin upp sú mynd upp af frökkum sem skepnum.
það er víst talað stuttlega um pólitíkina á bak við atburðina í myndinni á þann hátt að blaðamenn ganga á foringja sérsveitanna, col. mathieu, varðandi réttmæti pyntinganna, og foringinn hitt beint á kjarna málsins í svari sínu: átti alsír að vera áfram partur af frakklandi eða ekki?

ég hef verið stundum að hugsa um það hvað sé réttlæti í heiminum. það er víst svo að það eru fáar þjóðir á vesturlöndum í dag sem eru lausar við voðaverk í sögu sinni. þessi ríki vilja flest öll sópa þessum blettum af hvítflibbanum nú um leið og þau eru að setja ofan í við stjórnendur ríkja í öðrum heimshlutum þar sem ástandið er bagalegt.
það er óþarft að tína til voðaverk þjoðverja í evrópu en það er kannski rétt að minna á aðfarir þeirra í rúanda, kenýa og namibíu á nýlendutímanum. í namibíu þá stunduðu þjóðverjar það að fara á mannaveiðar úti í kalahari eyðimörkinni.
belgar stunduðu grimmdarlega ógnarstjórn í congo sem var sem betur fer þeirra eina nýlenda (hún var þó að nafninu til einkaeign konungsins leopolds en ekki ríkisins). dæmi um hvað var aðhafst þar var að ef þorp uppfyllti ekki framleiðslukvóta sem nýlenduherrarnir settu þeim þá var þeim refsað með því að íbúar voru valdir að handahófi og limhöggnir.
frakkar reyndu kerfisbundið að útrýma menningu nýlendnanna sinna til þess að skapa sterkt frakkland, ráðstöfun sem kannski stafaði af minnimáttarkennd gagnvart bretum og þjóðverjum. en meðal annars þá var alsír innlimað í frakkland af þessum sökum. í frelsisstríði alsír þá beittu frakkar samskonar aðferðum á andspyrnumennina og þjóðverjar höfðu gert í frakklandi rúmum áratug áður. margir þessara hermanna höfðu sjálfir verið fórnarlömb gestapó og ss en voru nú komnir hinu megin borðsins. einhver gæti sagt að þeirr hefðu átt að vita betur.
ítalir komu seint að taflinu um áhrif í afríku en fóru þar um með þeim mun meiri látum. fjöldamorð á eþíópíumönnum er víst eitthvað sem ekki verður þurkað af samvisku ítala jafnvel þó að þeir skíli sér á bak við fasisman og mússólíni.
þó að norðurlandaþjóðirnar séu ekki þekktar fyrir útþennslu sína þá eru t.d. svíar ekki saklausir því þeir hafa tekið þátt í að halda átökum á floti með vopnaframleiðslu og -sölu. þó að þeir segjast vera með þá stefnu að selja ekki vopn til átakasvæða þá þarf enginn að segja mér að þeir séu ekki að hagnast af vopnuðum átökum víða í heiminum.
bretar þar er nú sér kafli, hvar ætti maður að byrja. það líklegast best að byrja á einhverju nýlegu. nauðganir breskra hermanna á konum í kenía (kenía er sjálfstætt en hefur leyft bretum að stunda herþjálfun þar). hernaður við súlúmenn í suður-afríku. þvinguð ópíumsala til kína osfrv.
bandaríkjamenn og rússar voðaverk þeirra og valdabarátta í kaldastríðinu fengi hitler til þess að líta út fyrir að vera sakleysislegan óvita. hann átti náttúrulega að gara eins og þeir, að láta aðra stunda drápin en sponsora þau bara í staðinn. vissulega þá gekk það ekki alltaf upp og þess vegna höfum við atburði eins og afganistan og víetnam. engum dylst í hversu miklum órétti þessi stórveldi voru þegar þau hófu hernað sinn í þessum löndum. en það sesm er skuggalegast við til dæmis víetnamstríðið var skuggahernaðurinn sem var háður utan vitneskju bandaríska þingsins en þó með leyfi forsetans. kambódía og laos voru saklaus fórnarlömb í ófriði sem var víst algjörlega tilgangslaus.

fjandinn ég er kominn í fúlt skap. og helgin að koma. best að hætta þessu.

góðar stundir

miðvikudagur, september 14, 2005

 
dýrið gengur laust...

...líf er að færast í drenginn, það gæti verið að hann sé að byrja aftur að blogga.

þriðjudagur, febrúar 17, 2004

 
var að laga til að linkasíðunni, mikil framtaksemi á þeim bænum, er í gríðar miklu letistuði, gæti ekki tekið upp bók þótt mér yrði borgað fyrir það. svei.

fimmtudagur, febrúar 05, 2004

 
vinur minn er í minnihlutahópi hér á íslandi, hann er af öðru þjóðerni en við hin. upp á síðkastið hefur stærsta flatbökufyrirtæki landsins valið að gera þjóð hans að skotspón sínum í auglýsingum sínum. litla sæta fjölskyldan á fólksbílnum sínum með hjólhýsið sitt sem kemur til reykjavíkur vegna þess að það er megavika hjá domino's. nú hefur fyrirtækið bætt um betur og komið með áframhald í auglýsingaherferðinni. fjölskyldufaðirinn sækir um starf hjá domino's í nýrri auglýsingu og hann fær það. þetta er frekar fyndnar auglýsingar og vinur minn hefur mikinn húmor fyrir þeim. en hann náði domino's í bólinu í kvöld, hann bauð mér í pizzu í tilefni af því að vera fluttur í nýja íbúð, hann hringdi og pantaði á tungmálinu sem fjölskyldan talar í auglýsingunni, sum sé hann reyndi að panta pizzu á færeysku en það var ekki hægt, enginn á domino's skildi hann. hann varð að beita fyrir sig íslenskri tungu til þess að fá afgreiðslu skammlaust.

frekar lélegt af fyrirtæki sem stærir sig af þjónustu við þennan minnihlutahóp :-)

dominos flatbaka
grindhvalapizzur

þriðjudagur, febrúar 03, 2004

 
í byrjun er rétt að afsaka sig fyrir skrifletina, ég hef bara ekki haft frá neinu að segja.
en ég var að horfa á kastljós í kvöld sem saman stóð af símaviðtali við eitt stykki reiðan forseta og viðtali við hrokafullan forseta sem hélt að hann væri mættur í drotningarviðtal a la forsætisráðherra.
fyrst ætla ég að segja að það var skrýtið af hr. ólafi ragnari að fara úr landi á þessum tíma vitandi að 100 ára afmælið væri um þessa helgi. en það er víst ekki málið í þessum skrípaleik sem ríkistjórn davíðs oddsonar hefur hrist fram úr erminni. vissulega er það svo að forsetar alþingis og hæstaréttar fara ásamt forsætisráðherra með forsetavaldið í fjarveru forsetans, stjórnarskráin segir skýrt til um það. en ég verð að lýsa hneykslun minni á þeirri ákvörðun handhafanna að hafa ekki samband við réttkjörinn forseta og láta hann vita að fundur verði haldinn í ríkisráðinu í fjarveru hans. síðast þegar fundur var haldinn í ríkisráðinu í fjarveru forseta þá voru aðrar aðstæður í heiminum, það var meira en að segja það að ná samband við mann á ferðalagi erlendis, hvað þá að komast til íslands með stuttum fyrirvara. en í dag þá er ekkert einfaldara en að hringja í farsíma viðkomandi. þá eru víst fyrir löngu runnin upp þotuöld og því ekki mikið mál fyrir íslending með nægt haldbært fé að komast heim hvort sem er frá ameríku eða evrópu á innan við sólarhring.
þó að við höfum mörg hver litið svo á að forsetaembættið sé léttvægt í samanburði við t.d. ríkisstjórnina eða þingið þá er hér um að ræða mikilvægasta kjörna embætti þjóðarinnar. forseti íslands er mótvægi við löggjafarvaldið, hann getur ef honum þóknast svo neitað að samþykkja lög frá alþingi og vísað þeim til þjóðaratkvæðagreiðslu (vald sem hvaða forsetisráðherra hefur ástæðu til að óttast) hann hefur vald til þess að rjúfa þing og boða til nýrra kosninga og hann hefur vald til þess að reka hvern þann embættismann sem hann hefur skipað. hann getur sem sagt ef alþingi er út að skíta komið valdinu til fólksins á ný eða ef forsætisráðherra er farinn að vera einum of úrillur í jobbinu skipt honum út af fyrir ferskari mann. en hefðin sem forverar núverandi forseta hafa skapað er ekki á þá leið. þeir hafa skapað þá hefð að vera ópólitískir í embætti. en það er ekkert í stjórnarskránni sem bannar forseta að vera pólitískur. það gæti hinsvegar orðið erfitt fyrir hann að ná endurkjöri ef hann skapar sér óvild í starfi. ég hefði hins vegar viljað að forseti íslands hefði t.d. vísað lögum um kárahnjúkavirkjun til þjóðarinnar, ég hefði viljað að fjárlög 2004 hefðu farið sömu leið svo við hefðum getað komið í veg fyrir helvítis niðurskurðinn á landspítalanum. ég hefði viljað að forseti hefði gripið fram fyrir hendurnar á ráðherrum sínum þegar þeir í óþökk þjóðar og þings hentu út áratugagamlri hefð fyrir hlutleysi þjóðarinnar.
að þessu öllu gefnu þá veltir maður því fyrir sér hvort davíð og félagar hafi verið að prufukeyra aðferðir til þess að koma lögum í gegn með þeim hætti að enginn geti komið í veg fyrir þau. um hvað fjallaði reglugerðin sem handhafar forsetavalds undirrituðu á fundinum? ég býst samt við að ekkert alvarlegt hafi verið í henni, en hver veit hvað verður næst í þeim pappírum sem handhafar forsetavalds undirrita í fjarveru forseta og án hans vitundar?
ég er á þeirri skoðun að breyta þurfi ákvæðum um handhafa forsetavalds í stjórnarskránni þannig að þeir séu ekki kvaddir til nema í þeim tilfellum þegar algjörlega ómögulegt er að ná til forseta eða að forseti hefur gefið þeim leyfi til þess að taka við takmörkuðu umboði í fjarveru hans, þ.e. þeir hafi ekki leyfi að halda ríkisráðsfund upp á sitt einsdæmi.
um viðtalið við halldór blöndal í kastljósi hef ég þetta að segja: það er grátlegt að sjá hvernig stjórnarþingmenn eru farnir að koma fram við fréttamenn eins og primadonnan davíð gerir. fréttamennirnir tveir gerðu eins og þeir gátu til að fá halldór til þess að svara einfaldri spurningu en hann sýndi þeim og okkur þá óvirðingu að bregðast önugur við skamma þau fyrir að grípa fram í og svara svo út og suður auk þess sem hann hnýtti út í forsetann.
það er víst ekki eins og þessi maður skilji að forseti íslenska lýðveldisins getur rofið þing og boðað til nýrra kosninga ef hann er nógu pirraður.
að lokum vil ég þakka davíð oddsyni fyrir að hafa sýnt okkur með þessum asnaprikum sínum að embætti forseta íslands er mun mikilvægara en við höfum vanist á að telja. það er hins vegar að komi tími á að forsetinn nýti það vald sem stjórnarskráin kveður á um og við færum honum á 4 ára fresti.

miðvikudagur, janúar 07, 2004

 
já nú er komið að því, í fyrsta skipti á árinu, það á að blogga. ég hef reyndar ekki verið að hafa fyrir því að skrifa nokkurn skapaðan hlut hér síðan fyrir jól. svo hér kemur útlistun yfir hvað gerðist markvert síðasta hálfa mánuðinn:
ég fór heim í sveitina til að halda upp á jólin.
ég fór ekki á jólaball í sveitinni enda ekki undirbúinn fyrir það menningaráfall sem því fylgir, ég meina hvað eru "ýmsir flytendur".
ég vann alveg hellings ósköp í jólafríinu.
and i became a dull boy, but hey! ég keypti mér árskort í ræktina, nú skal ístran hverfa...

skólinn er að byrja í dag, fyrsti tími í mannkynssögu III með ögmundi jónassyni og inga sigurðssyni. allt saman mjög rólegt í fyrsta tíma. en ég held að þetta sé í fyrsta skipti sem ég sé til ömma þar sem hann segir ekki neitt ;)

laugardagur, desember 20, 2003

 
jæja þá eru prófin búinn og maður getur farið að einbeita sér að jólasteikinnim ég meina hvað er það mikilvægasta við jólin annað en jólasteikin eins og pabbi gerir hana. 10 kílóa hamborgarlæri sem hefur fengið að dúsa í viðeigandi refsivist í maltbaði inni í ofni. ég hlakka svo til, ég hlakka alltaf svo til.
minns flýgur heim með flugfélagi íslands í annað kvöld, veit ekki hvort ég bloggi meir fyrir jól en er að fá mér í glas núna gleðileg jól allir saman

fimmtudagur, desember 18, 2003

 
er með greinar á sellunni og pólitík.is
í dag. ein um ísrael og hin um aðstæður geðveikra. á annars að vera að lesa. lestrar planið hefur vægast sagt farið út um þúfur. nóg í bili.

sunnudagur, desember 14, 2003

 
ég hef ekki bloggað lengi, hef verið að lesa fyrir próf. á eitt próf eftir núna sem verður 20. des. ég ákvað hinsvegar að pikka þetta inn eftir að hafa heyrt útvarpsfréttir þar sem að flutningur neyðarmóttöku vegna nauðganna inn á kvennadeild við hringbraut var gagnrýndur, m.a. á þeim rökum að starfsemin væri ekki samrýmanleg, auk þess að sérþekking glatist. gott og vel, ég kaupi það.
það sem ég var að huxa um var að mörg fórnarlömb nauðganna koma af sjálfsdáðum á mótökuna, þ.e. er ekki ekið inn í sjúkrabíl. sú reynsla sem fylgir því að verða nauðgað er eitthvað sem ég get ekki gert mér sjálfur í hugarlund. en maður hefur samt heyrt af því að ein af tilfinningunum sem fórnarlömb finna er skömm, sem verður til þess að þau draga það eða sleppa því að leita til móttökunnar.
og þar með erum við komin að því sem flaug mér í hug: það eru ekki öll fórnarlömb nauðganna konur, í einhverjum tilfellum á hverju ári er körlum nauðgað. gera má ráð fyrir að einungis örlítið hlutfall þeirra leiti til móttökunnar og lágt hlutfall þeirra er líklegast vegna skammarinnar sem þeir finna fyrir. og því velti ég því fyrir mér hvort sú ákvörðun stjórnar landspítalans að flytja móttökuna yfir á kvennadeild verði ekki til þess að loka alfarið á þann möguleika að karlkyns fórnarlömb nauðganna þorri að leita sér aðstoðar?

bara smá pæling...

fimmtudagur, nóvember 20, 2003

 
ég er með grein í dag þar sem ég gagnrýni landsfund samfylkingarinnar, það var meira ruglið með koma henni inn, í henni er létt skott á formann uj og ritstjórinn setti upp ritskoðunargleraugun sín og vildi að ég feldi þá málsgrein út.
ég urraði á móti og líklegast móðgaði kappann og býst við að hann sé súr út í mig en hann setti greinina inn, takk fyrir það.
ég nenni ekki að vera að dreifa beiskum brjóssigg svo ég býst við að ég sé að færa mig yfir frjálsan og óháðan vefmiðill nú á allra næstu dögum. ef málgagn uj má ekki vera vettvangur innbyrðis skoðannaskipta og sjálfsgagnrýni þá á ég líklegast ekki erindi þar.

þriðjudagur, nóvember 11, 2003

 
sá norski var að fara, ég fékk að taka mynd af honum...

 
what movie do you belong in? i belong in:
CWINDOWSDesktopFightclub.jpg
Fight Club!


taka prófið
í boðiQuizilla

 
rakst á þetta...

mánudagur, nóvember 10, 2003

 
helgin var sérstök, fór í partý til bróður míns á laugardag, kallinn varð þrítugur, og svo varði ég sunnudeginum í þynku. en um kvöldið fór ég í vinnuna mína, sem telst ekki í frásögu færandi nema að þar fékk ég mína útgáfu af kill bill og varði svo fjórum yndislegum klukkustundum í að þrífa upp blóð og glerbrot. ég vinn á hóteli með háskólanáminu, hér verður ekki sagt hvaða, og nú á sunnudagskvöldið urðu víst einhver sinnaskipti milli norsks pars sem var á hótelinu sem enduðu með því að gaurinn rústaði hótelherberginu og kom síðan fram í einhverjum rocky fíling og skallaði í gegnum rúðu, svona vírbenta sem á ekki að vera hægt að fara í gegnum, en minn maður gerði höfuðstórt gat í rúðuna, já ég hefði getað stungið fótbolta í gegn án þess að rispa hann, 45 spor í kollinn hjá hetjunni, og fjögura tíma vinna hjá mér við að hreinsa upp blóðlifrar úr gólfinu og skola blóðslettur af veggjum. löggan kom á staðinn en auðvitað of seint því ég var búinn að biðja um löggunna áður en rocky kom fram en svo þegar ég bað um að þeir tækju saumavélina með á staðinn þá var það ekki nema mínúta.
rocky fékk svo gistingu í boði böðvars braga á hverfisgötunni eftir saumaskapinn. hann fékk svo að koma aftur í kvöld, fer úr landi í fyrramálið, ræfillinn var eins og kleina, hann skammaðist sín svo, en hann greiddi skemmdirnar möglunarlaust, þær kostuðu 9 sinnum meira en gistingin. en þetta er líklega líflegasti nojari sem ég kynnst...

heyja norge

miðvikudagur, nóvember 05, 2003

 
djöfull var ég pirraður, ég hef verið það pirraður að það hefur tekið mig 3 daga að fást til að skrifa nokkuð skapaðan hlut um þetta mál en svo er á mann minnst í fréttablaðinu í dag þar sem sagt var að ég hafi verið pirraður svo að ég ákvað að koma hér með mína hlið.
sko, ég var á landsfundi samfylkingarinnar um helgina og þar lögðum ég og félagi minn helgi seljan yngri fram nokkrar ályktanir til samþykktar á fundinum. þær voru meðal annars um bættan aðbúnað fanga og um aðskilnað ríkis og kirkju.
sú fyrrnefnda vakti enga athygli en sú seinni vakti strax upp þau viðbrögð að einhverjir vildu að henni yrði vísað frá og til framkvæmdarstjórnar. gott og vel þannig getur lýðræðisleg umræða virkað og ekkert við það að athuga.
það sem fór fyrir brjóstið á mér og félögum mínum var það hvernig ákveðinn legáti biskups og einkavinur varaformanns flokksins brást við eins og hálfviti og kallaði flutningsmenn tillögunnar hryðjuverkamenn og svo stuttu seinna kom varaformaðurinn upp og lagði fram tillögu um að öllum málum sem ekki höfðu hlotið meðferð í málefnahópum og nefndum á þinginu skildi sjálfvirkt vísað til framkvæmdarstjórnar sökum tímaskorts. þetta leit því út eins og skipulögð aðför að tjáningar- og málfrelsi flutningsmanna, en við vitum samt betur, skipulagið var bara svona helvíti lélegt.
en hvernig í andskotanum stendur á því að þessi flokkur geri slík regin mistök í skipulagningu landsfundar síns að aðeins eru ætlaðar 30 mínútur til að greiða atkvæði um þær ályktanir sem bornar voru upp um helgina (þær voru a.m.k. 27) og enn fremur hverjum datt það í hug að fá tvo gamla heimdalla til að blaðra um hvað þeim þykir að og hvað ekki í viðskiptalífinu á íslandi í dag í staðin fyrir að tíminn yrði notaðir til að hlusta á okkar eigin flokksmenn. ég veit ekki betur en að styrmir ritstjóri morgunblaðsins hafi notað tækifærið í pontu og makað aur á þá hugmynd að baugsfeðgar og aðrir auðjöfrar væri að bylta til fjölmiðlamarkaðnum og hafa skal í huga að ræðan flutt á þeim tímapunkti að jón ásgeir var að spá í að kaupa leifarnar af dv. hefði ekki verið mikilvægara að stjórnmálaflokkurinn samfylking hefði notað tímann á fundinum til að fara í saumanna á málum sem meðlimum þykja mikilvæg? það er umræða í samfélaginu um aðskilnað ríkis og kirkju og ég sem félagi í samfylkingunni vildi fá skírt og skorinort já eða nei frá landsfundinum sjálfum, rödd hins almenna meðlims, ekki flokkstjórn, ekki framkvæmdastjórn og ekki þingflokki.

en það er samt ekki á hverjum degi að það rati í blöðin þegar ég skipti skapi...

þriðjudagur, október 28, 2003

 
svona, kominn með kommenta kerfi, stoltur.

 
36 klst komnar í vöku, ég þarf að fara að slaka á koffein neyslunni.

æ hvað guðni virkar saklaus og hissa þegar hann var spurður um álit á skoðanakönnun fréttblaðsins vegna öryrkjadóms hins seinni. hann gat allt eins sagt "það þarf að mennta lýðinn, við erum bara að gera þeim gott, hvað hafa öryrkjar að gera með pening?"

mánudagur, október 27, 2003

 
er sá í lagi sem fer á fætur klukkan 1/2 6 á mánudagsmorgni til að malla risotto? veit ekki en það var fjandi gott hjá mér.

sunnudagur, október 26, 2003

 
er að horfa á discovery channel, þátt um "skinnlist" þar sem fólk hefur tekið sig til og víkað út normið, ok ég er með göt og ég er með tattú, en að höggva af sér fingur, tær eða stærri líkamshluta, dæla saltlausn undir húðina til að gera tímabundin kýli. áiiii.

 
æ, æ, hryðjuverkamenn í írak voru að ráðast á aðalstöðvar bandarísku stjórnarinnar í bagdad,
wolfowits aðstoðar stríðsglæpastjóri hirðarinnar í washington var víst skotmarkið en slapp lifandi en einhver annar var ekki svo heppinn og ekki heldur þessir fimmtán sem slösuðust.

terrorist attack kölluðu þeir það í fjölmiðlum áðan, en hefur nokkrum dottið í hug að þetta hafi bara verið verk frelsiselskandi þjóðernissinna í sama anda og andspyrnuhreyfinganna í seinni heimsstyrjöldinni?

laugardagur, október 25, 2003

 
þessi síða hefur legið í láginni upp á síðkastið en nú skal gert betur, ég var aðeins að laga til og tengja síðuna við heimasíðuna mína, nú er bara að fara að segja eitthvað merkilegt...

Archives

10/01/2003 - 11/01/2003   11/01/2003 - 12/01/2003   12/01/2003 - 01/01/2004   01/01/2004 - 02/01/2004   02/01/2004 - 03/01/2004   09/01/2005 - 10/01/2005   10/01/2005 - 11/01/2005   11/01/2005 - 12/01/2005  

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

hjalti